Um Premiertrips

Við gerum drauma fótboltaaðdáenda að veruleika

Premiertrips er íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í fótboltaferðum til Englands. Við bjóðum bæði hópaferðir með fararstjóra og miðasölu á alla leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Markmið okkar er að gera drauma fótboltaaðdáenda að veruleika - hvort sem þú vilt upplifað andrúmsloftið á Anfield, Theatre of Dreams eða Emirates Stadium. Við sjáum um allt frá A til Ö.

Við erum með starfsstöð á Selfossi og þjónum viðskiptavinum um allt land.

Af hverju Premiertrips?

🎟️

Tryggt aðgengi

Við tryggjum miða á alla leiki í ensku úrvalsdeildinni - ekkert selt upp hjá okkur fyrr en það er búið.

🏨

Allt innifalið

Flug, hótel, miðar og oft íslenskur fararstjóri - þú þarft bara að mæta.

👥

Persónuleg þjónusta

Lítill hópur, persónuleg þjónusta. Við þekkjum viðskiptavini okkar á nafn.

Reynsla og ástríða

Farastjórar okkar og starfsmenn okkar eru sjálfir ástríðufullir fótboltaaðdáendur sem vita hvað þarf til.

Farastjórar / Starfsmenn

Farastjórar okkar og starfsmenn okkar eru valdir sérstaklega fyrir ástríðu sína fyrir fótbolta og reynslu af ferðalögum.

Reynir B Reynisson

Reynir B Reynisson

Aðal farastjóri

Reynir hefur stýrt ferðum til Englands í mörg ár og þekkir Liverpool eins og lófann á sér. Anfield upplifunin er honum í blóð borin.

Simmi Vill

Simmi Vill

Farastjóri

Simmi er þekktur stuðningsmaður og tekur hópinn sinn með sér inn í andrúmsloftið. Fjör og gleði eru alltaf í fyrirrúmi þegar Simmi er við stjórnvölinn.

Ívar Daníels

Ívar Daníels

Farastjóri

Við erum afar ánægð að hafa Ívar Daníel með okkur sem fararstjóra hjá PremierTrips. Ívar er reynslumikill fararstjóri, skemmtikraftur og tónlistarmaður sem hefur ferðast víða um Evrópu og kynnst ensku úrvalsdeildinni af eigin raun. Hann þekkir leikvangana, borgirnar og stemninguna í kringum leikina einstaklega vel og er alltaf vel undirbúinn fyrir hverja ferð. Ívar leggur metnað í að gera upplifun ferðalanganna sem besta og veit nákvæmlega hvar er að finna bestu staðina til að borða, skemmta sér og njóta þess sem hver borg hefur upp á að bjóða.

Ási Guðna

Ási Guðna

Farastjóri

Ási Guðni er útvarpsmaður og skemmtikraftur sem flestir kannast við. Hann er þekktur fyrir létta lund, skemmtilegan húmor og hefur á undanförnum árum skapað sér sterkan sess sem einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Með Ása Guðna sem fararstjóra má búast við frábærri stemningu frá upphafi til enda. Hann hefur einstakt lag á að ná fólki saman og gera góða ferð enn betri með húmor, góðum sögum og skemmtilegum félagsskap.

Birkir Vagn Ómarsson

Birkir Vagn Ómarsson

Farastjóri

Það er óhætt að segja að Liverpool eigi stóran stað í hjarta Birkis Vagns Ómarssonar. Hann hefur fylgt liðinu í gegnum súrt og sætt, farið ótal sinnum á Anfield og þekkir borgina og stemninguna sem fylgir leikdegi eins og lófann á sér. Birkir hefur gaman af því að deila reynslu sinni og uppáhaldsstöðunum sínum með ferðafélögum. Hvort sem það er að finna rétta pöbbinn fyrir leik, skoða borgina eða njóta stemningarinnar í kringum Anfield, þá veit hann nákvæmlega hvað gerir Liverpool-ferð eftirminnilega. Með Birki sem fararstjóra færðu ekki bara leiðsögn – heldur ferð með manni sem hefur einlæga ástríðu fyrir Liverpool, borginni og öllu sem henni fylgir.

Egill Ploder

Egill Ploder

Farastjóri

Við erum virkilega ánægð að fá Egil Ploder, útvarps og tónlistarmann, í hóp fararstjóra hjá PremierTrips. Egill er einn af þekktustu stuðningsmönnum Liverpool á Íslandi og hefur fylgt félaginu af mikilli ástríðu í gegnum árin. Fyrir honum snýst Liverpool ekki bara um fótbolta heldur einnig söguna, menninguna og einstöku stemninguna sem fylgir borginni og Anfield. Sem fararstjóri leggur Egill áherslu á að allir njóti ferðarinnar, hvort sem um er að ræða fyrstu heimsókn á Anfield eða þá tíundu. Með góðu skapi, húmor og mikilli þekkingu á Liverpool skapar hann frábæra stemningu og gerir upplifunina enn eftirminnilegri. Með Agli sem fararstjóra færðu ekki aðeins ferð á leik heldur ferð með manni sem lifir og hrærist í Liverpool og hefur einstaka ánægju af því að deila þeirri upplifun með öðrum stuðningsmönnum.

Rúnar "Hroði" Geirmundsson

Rúnar "Hroði" Geirmundsson

Farastjóri

Rúnar „Hroði“ Geirmundsson er sannkallaður kraftpakki sem sameinar reynslu, gleði og einstaka ástríðu fyrir Liverpool. Hann er Ironman-keppandi, söngvari, einkaþjálfari og einn dyggasti Liverpool-maður sem fyrirfinnst. Hroði hefur fylgt Liverpool í gegnum súrt og sætt í áratugi og þekkir sögu félagsins, menninguna og borgina eins og lófann á sér. Ástríðan fyrir félaginu smitar út frá sér og gerir ferðina að enn meiri upplifun fyrir alla sem ferðast með honum. Sem fararstjóri leggur Hroði metnað sinn í að skapa góða stemningu, halda hópnum vel upplýstum og tryggja að allir njóti ferðarinnar til fulls. Með jákvæðni, húmor og mikilli reynslu sér hann til þess að ferðin verði bæði eftirminnileg og skemmtileg.

Simon Davies

Simon Davies

Farastjóri

Við hjá PremierTrips erum afar stolt af samstarfi okkar við Simon Davies einn af okkar traustustu samstarfsaðilum í Liverpool. Simon er fæddur og uppalinn í borginni og þekkir hana út og inn, allt frá helstu kennileitum til falinna staða sem aðeins heimamenn vita um. Simon starfar einnig mikið í kringum Liverpool FC og sér reglulega um akstur fyrir leikmenn félagsins og annað starfsfólk tengt klúbbnum. Þessi reynsla og traust sem honum er sýnt segir sitt um fagmennsku hans og áreiðanleika. Þegar þú ferðast með PremierTrips eru miklar líkur á að Simon taki á móti hópnum á flugvellinum og sjái um aksturinn. Hann leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónustu og deilir gjarnan fróðleik og sögum um Liverpool, borgina sem hann elskar og þekkir betur en flestir. Það er okkur sönn ánægja að hafa Simon sem hluta af teyminu okkar og við erum sannfærð um að viðskiptavinir PremierTrips muni fljótt skilja hvers vegna hann nýtur jafn mikillar virðingar og trausts í Liverpool.

Hafa samband

📞

Sími

680-0000
📍

Heimilisfang

Engjavík 15, 800 Selfoss

🕐

Opnunartímar

Mán - fös: 9:00 - 17:00